Kammerhópurinn Nordic Affect var stofnaður árið 2005 með að markmiði að miðla ríkidæmi tónlistar 17.og 18.aldar og flytja samtímatónlist. Meðlimir hópsins eiga allir að baki nám í sagnfræðilegum hljóðfæraflutningi og koma reglulega fram víða um Evrópu. Það að skoða þekktar stærðir út frá nýjum hliðum og halda á ókönnuð mið einkennir starf þeirra en Nordic Affect hefur með tónleikum sínum á Íslandi og víðs vegar um Evrópu flutt allt frá danstónlist 17.aldar til hinnar spennandi raftónsköpunar nútímans og hlotið fyrir afbragðs dóma. NoA hefur m.a. hljóðritað fyrir Ríkisútvarpið og Samband Evrópskra Útvarpsstöðva. Fyrsti geisladiskurinn með leik þeirra; Apocrypha eftir Huga Guðmundsson var tilnefndur til Íslensku Tónlistarverðlaunanna og hlaut Kraumsverðlaunin 2008.

Listrænn stjórnandi hópsins er Halla Steinunn Stefánsdóttir